Vörn þar sem undirstaðan er sílikon.Smýgur djúpt inn í steininn, gerir hann vatnsheldan án þess að skaða eða veikja öndun steinsins. Verndar yfirborð gegn rigningu þannig að vatnið perlar af auk þess að vera vörn gegn óhreinindum. |
|
Efni sem mettar steininn og dregur mjög vel fram litina í honum. Hentar sérstaklega vel til litaraukningar í dökkum og svörtum stein (eins og Nero Assoluto, Impala black og Galaxy). Veðurþolin vara með langvirka verkun jafnt innandyra sem utan. Skemmd svæði svo sem hárfínar sprungur er hægt að meðhöndla. Yfirborð sem meðhöndlað hefur verið með efninu verður einsleitt. Hentar afar vel fyrir fín yfirborð og póleraðan stein. |
Vörn sem dregur sérstaklega vel fram litina og skuggana í steininum, smitast ekki í mat (prófað af LGA Nuremberg, Þýskalandi). Veðurþolið efni með langvirka verkun jafnt innandyra sem utan. Efnið framkallar „blautt útlit“ á flötinn sem það er notuð á, án þess þó að flöturinn verði glansandi. Efnið hrindir frá sér vatni og óhreinindum og er sérstaklega hentugt fyrir hrúf yfirborð og náttúrstein sem er rakadrægur, sem og tilbúinn steinn. |
|
Stain Repellent Nano-Effect |
 Framúrskarandi mettun, þar sem undirstaðan eru hágæða lífræn efni, matar öruggt (prófað af LGA Nuremberg, Þýskalandi). Verndunin byrjar að virka eftir 10-20 mínútur við 20°C. Mjög sterk vatns, fitu og olíu- fráhrindandi efni þar sem virknin hefst aðeins nokkrum mínútum eftir að efnið hefur verið borið á og er búið að ná fullri verkun eftir 2-3 klst. Litur steinsin helst óbreyttur. Nano-virkt efni sem hrindir frá sér vökva og kemur í veg fyrir að raki komist í efnið. Vatns perlur sem eru á yfirborði steinsins, renna af yfirborðinu auðveldlega. |
|
Bón á steingólf.
Hágæða vax vökvablanda þar sem uppistaðan er vatn með fjölliðum sem eru án leysiefna. Degur fram lit og skugga. Er varnarfilma sem er mjög slitsterk og gljáandi á sinn hátt. Efnið lífgar upp á dauft og matt yfirborð og gerir það auðveldara í þrifum auk þess sem það hrindir frá sér vatni og óhreinindum. Aðeins til notkunar innandyra |
|
Mild sápa fyrir steingólf.
Steinsápa gerð úr hágæða hreinsi-, hjálpar- og ilmefnum. Án fosfats, lúts, vax og fjölliða og brotnar niður í náttúrunni. Til reglulegra þrifa og umönnunar á yfirborði náttúru- og tilbúins steins. Efnið verndar steininn ef það er notað reglulega auk þess sem karakter og litur steinsins helst óbreyttur. |
Rjómalitað krem með mikilli virkni, auðvelt í notkun. Notað til að fjarlægja fitu, olíu, vaxbletti og litamismun af völdum mýkingarefna í efnum sem loka steinum. Hentar á allar tegundir af náttúru- og tilbúnum steini. |
Anti Slide R9
Mjög áhrifamikið, vatnskennt, ólífrænt efni sem uppfyllir "class 9" staðla fyrir hálkuvörn (prófað af samþykkt af LGA Wurzburg).
Hálkuvörn sem virkar á slétt pólerað og glansandi yfirborð, sérstaklega granít, gabbró o.fl. tegundir af „hörðum steini“ t.d. keramikflísar. Hægt er að nota efnið jafnt innandyra sem utan.
Yfirborð sem meðhöndlað hefur verið með AKEMI anti Slide R9 uppfyllir kröfur sem gerðar eru á hálkuprófunum á blautum fleti sjá staðlana DIN 51130 og BGR 181 ásamt breskum leiðavísi um örugg yfirborð (OSHA/ADA). Áferð og litur steinsins helst mjög vel. |
|
|
|