Flash
Forsíða
Graníthúsið
Legsteinar - "Mikið úrval aukahluta"

Við erum stoltir að kynna nýja línu af aukahlutum fyrir legsteina. Þetta eru einstaklega vandaðar ítalskar vörur og erum við ánægðir að geta boðið uppá slík gæði sem þessar vörur bera. Nú getur hver sem verslar við okkur fundið mikið úrval af ljósaluktum og blómavösum í öllum stærðum og gerðum. Einnig er mikið af fallegum rósum, krossum, bænahöndum og mörgu öðru. Eitt er víst, að flestir munu finna eitthvað sem þeim líkar. Þetta er enn ein viðbótin í það mikla vöruúrval sem Graníthúsið hefur uppá að bjóða. 

 
Legsteinar Graníthússins

Hérna eru myndir af nokkrum glæsilegum legsteinum sem við höfum uppá að bjóða. Sumarið hefur gengið rosalega vel og eins og má sjá á myndunum þá hefur okkar aðalsmerki verið fallegur frágangur. Við erum stoltir af því úrvali sem við höfum uppá að bjóða og hefur fólk haft orð á því að hvergi finnst annað eins úrval af fallegum granít legsteinum. Við þökkum fyrir sumarið og vonum að allir þeir sem af okkur keyptu legstein sé ánægðir með þá þjónustu og vinnubrögð sem við inntum af hendi.

 
Granite Gold,frábært hreinsiefni fyrir granítborðplöturnar

Erum komnir með í sölu frábært hreinsiefni fyrir allan náttúrustein. Það heitir Granite Gold og er eitt mest selda hreinsiefni fyrir náttúrustein í Bretlandi. Þetta er annarsvegar hreinsiefni (750ml brúsi) sem má nota daglega og hinsvegar glansefni (750ml brúsi) sem lokar/verndar og lætur steininn glansa fallega. Þetta eru hreinsiefni sem auðvelt er að nota og innihalda engin spilliefni. Rannsóknir hafa sýnt fram á að ef notuð eru hreinsiefni sem ekki ekki eru ætluð fyrir náttúrustein þá getur yfirborð steinsins mattast með tímanum og misst sinn upprunalega glans.

 

 

Tilkynningar

Vilt þú fá nýja bæklingin
sendan heim ?
Smelltu hér ,sendu okkur heimilisfang, póstnúmer, nafn og netfang.
Og við sendum hann til þín.
Einnig er hægt að sækja hann hér sem PDF skjal.

 SAMSTARFSAÐILAR

VIÐHALD & NÝSMÍÐI ehf.